Uppgjörið

Þá liggur uppgjörið fyrir hippaballið fyrir og það er ljóst að 103 þúsund krónur verða eftir "í héraði" eins og þar stendur.

Mikið er gaman að skemmta sér svona vel og láta afraksturinn renna til viðhaldsins  Wink.

Það er að segja viðhalds Ketiláshússins InLove.  Gleðilegt var að sjá hversu vel hefur tekist til við endurbæturnar og við erum stolt af að vera þátttakendur í þessu verkefni.  Það hefur mjög margt áunnist, búið að setja allt nýtt á salernin, nýtt eldhús, mála húsið innan og klæða það að utan að hluta til, slípa upp dansgólfið, endurnýja glugga og setja ný gluggatjöld svo eitthvað sé nefnt.  Margt er þó enn á listanum eins og gefur að skilja með gömul hús og við höfum bókað húsið næsta ár í því skyni að styðja við það sem gera þarf.

-- 

Þess má og geta að Kristín Sigurjónsdóttir lét afrakstur þeirrar sölu sem hún var með á báðum mörkuðunum renna til Ketiláshússins.

-- 

Einnig var undirritaðri gefin fatnaður til sölu til styrktar Þuríði Hörpu frá Sauðárkróki sem við studdum við í fyrra með málverkauppboði. Sú sala skilaði 5000 krónum og hefur það verið lagt inn á reikning hennar á Sauðárkróki.

 

KetilásKetilás

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru svipmyndir frá Ketilásnum. 

 

Margt smátt gerir eitt stórt! 

IppaHeart 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gleðilegt að heyra þetta.Höldum áfram svona.

Alla Valbergsd. (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 16:47

2 identicon

Þetta er flott, stefni að mæta næsta ár en það var líka skemmtilegt í London að hlusta á allar þessar hljómsveitir og svo enduðu Emerson Lake og Palmer með stæl, Emerson velti um einu stykki af Hammond orgeli svo dæmi séu nefnd

Rögnvaldur S Valbergsson (IP-tala skráð) 30.7.2010 kl. 17:16

3 Smámynd: Ketilás

ÞÚ Í ÞAÐ RÖGGI !

Ketilás, 30.7.2010 kl. 20:48

4 Smámynd: Vilborg Traustadóttir

Eigum við að hafa Rögga í að kasta orgelum? :)

Vilborg Traustadóttir, 30.7.2010 kl. 22:22

5 Smámynd: Ketilás

Auðvitað - byrja í þjálfun - strax !

Ketilás, 31.7.2010 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 245094

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband