Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008

Is this love?


Góður.....vinsælt kring um 1978.... Errm...Ippa

I love to love (But my baby just loves to dance)!!!!

Allir elska Tinu Charles.  Ég fór til Ísafjarðar einu sinni með Esjunni.  Á Ísafirði heimsóttum við vinkona mín Jenný systir mömmu.  Auðvitað skellti Jenný Tinu Charles á fóninn!  Jenný var svo ung í anda.
Hugsa til hennar núna og sakna hennar.
 
Kveðja,  Ippa  

Honky Tonk Women...


Með kvepju,  Ippa Kissing

Úr textabók Öllu...

 
Þegar allir sungu Guttavísurnar.... 


Gutti: 30 árum síðar..

 

Senn þið heyrið sögu flutta

Sem þó allir hafa frétt.

Reyndar þolið þið ei Gutta,

Það er alveg rétt.

 

Moldfullur er ætíð maður sá,

Milli bara ráfar hann á kvöldin til og frá.

Konu sinni unir aldrei hjá

Og hann heldur fram hjá henni, já já svei mér þá.

 

Allan daginn út um bæinn

Eilíft heyrist hennar breim:

Gutti Gutti, Gutti, Gutti,

Gutti komdu heim.

 

Eftir tvo, þrjá, átta stutta

Alltaf lendir hann í slag.

Kvalin mjög er kona Gutta,

Kveinar sérhvern dag.

 

Hvað varst þú að gera Gutti minn?

Gleðikonan, hirti´ hún af þér allan peningin?

Rándýrt er að flengja ræfilinn.

Reifstu svona kjaft við nýja yfirmanninn þinn?

 

Þú skalt ekki þjóra, Gutti.

Þú þolir ekki meira svall.

Almáttugur, en sú mæða

Að eiga svona karl.

 

Gutti aldrei gegnir þessu,

Með Gretti Sig. Hannfer á bar.

Lamin var af trukkalessu

Á laugardaginn var.

 

Alveg hroðalega´ í dag hann datt.

Drottinn minn og hjónabandið illa’ á vegi statt.

Þar er allt í klessu, er það satt?

Ó já því er ver og miður, þetta er svo gratt.

 

Ævi hans er alla daga

Ekkert nema skakkaföll.

Enn er þessi angurssaga

Ekki næstum öll.

 

 

Kveðja, Ippa 


En hvað með heysáturnar sem allir eru að tala um að verði að vera á túninu í sumar ...????

Verður hægt að redda því ?

Það getur verið að einhver hafi einhverntíma stungið sig á stráum en hvað vitum við og hvað þurfum við að vera að velta okkur uppúr því........Ninja Heyrir sögunni til.Blush


Fun fun fun...


Kveðja,  Ippa  W00t

Heitur dans....

Falleg mynd ....


Og hverjir fengu sinn fyrsta koss á Ketilási....

Vel við hæfi...

     Fyrsti kossinn.

          Fyrsta kossinn ég kyssti rjóða vanga,

          þennan koss ég vil muna daga langa.

          Ég sá þig kæra fyrst um kvöld í mai,

          ég var að koma af rúntnum niðrí bæ,

          og hve þín ásýnd öll mig heillaði,

          því aldrei nokkurn tíma gleymt ég fæ.

          Það var sem eldur færðist yfir fljótt,

          og undir niðri var mér ekki rótt.

          Þú komst til mín við kúrðum saman ein.

          ég kæra gleymi aldrei þeirri nótt.

          Fyrsta kossinn....

          Síðan ég margan átti ástarfund,

          örlátur meyjarfaðmur og létt í lund,

          samt hafa forlögin svo fyrir séð,

          að fyrsta kossinn man ég alla stund.

 

Hm. E.T.V. ekki alveg svona fágað en............

MT


Úr textabók Öllu...

( Allir ættu að þekkja lagið...)

 

 

Baby72.htm.jpg

Æskan léttist oft í spori

Bommfadderí fadde rallalla....

Þegar grænka grös á vori,

Bommfadd........

Í æðum rennur örar blóð

Einkennir það vora þjóð

Bomm fadderí o.s.frv.

 

Ó þá gaman er að lifa

Bommfadderí.....

Enska stíla aldrei skrifa

Bommfadde....

Er skólahurðir skellí lás

Þá skreppum við á Ketilás.

Bommfadderí o.s.frv.

 

Þar er alltaf glens og gaman

Bommfadderí...

Og víst þar eru ýmsir saman

Bommfadde....

Mamma er sko ekki mát

Þó ég komi heim 

með strák

Bommfadde.......

 

Strákurinn var stór og feitur

Bommfadde....

Og af ást var ofurheitur

Bommfaddrí....

Ef við sofum sætt og rótt

Þá ekkert ætt‘ að ske í nótt

Bommfadderí.....

 

Sumarið var sæludraumur

Bommfadderí....

Ekkert nema glens og glaumur

Bommfadderí....

Á mér einhver breyting varð

Innan til við lendarnar

Bommfadderí,,....

 

Nú fór múttu margt að gruna

Bommfadde....

Við strákinn gerðist stutt í spuna

Bommfadde....

Af illsku og bræði orðin hás

Og aldrei skaltu á Ketilás

Bommfadderí.....

 

Alltaf tútnar á mér maginn

Bommfadde....

Og ég spring víst einhvern daginn

Bommfadd....

Og strokull gerðist strákurinn

Og stökk í burtu alfarinn.

Bommfadderí....

 

Nú er mamma orðin amma

Bommfadde...

Með barnavagn og barn að þramma

Bommfadde....

Og þegar spræk ég orðin er

Ég út í lífið helli mér.

Bommfadderí....os.frv.

 

 ---

Kveðja Ippa 

 

 





Í beinu framhaldi af hippastemmningunni hér næst á undan!

 
 "Allt sem við viljum - er friður á jörð!"
 
 

Gerist ekki betra....Ippa

Næsta síða »

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 76
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband