Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Kannist þið við þetta?

Hey lullei lullei lalala???   Ippa 


Portugal.........

Sit her í sólinni sydra og hef thad gott. Er búin ad vera tvo daga á Algarve og á Costa de Caparica í taepa viku. Thad var himneskt sól, sjór og sandur.
Erum núna í Lissabon hjá hluta af fjolskyldunni og á morgun verdur haldid enn nordar og inn í land. Engin lognmolla hér og var ad skoda hippa mussur á markodunum - nóg til, reddum tví fyrir naesta sumar ! Sjáumst heil. MT

Fundur í september

Við stöllur stefnum að undirbúningsfundi í september fyrir næsta hippaball á Ketilási. Húsið er bókað 25 júlí 2009, svo ekki er seinna vænna að fara að ákveða hvernig best er að haga málum.  


Don´t stop!

Þetta er eitt flottasta lag síðari tíma og í miklu uppáhaldi hjá mér. Boðskapurinn er sígildur, ekki hvað síst fyrir okkur sem erum farin að telja niður í Ketilásballið á næsta ári. Sjáumst!! Halo

Ippa Cool


Nefndin

Við í nefndinni óstöðvandi erum á faraldsfæti þessa dagana,  Magga er í Portúgal að heimsækja "ættbálkinn" mannsins síns,  Ippa er að leggja af stað í ferð á Hornstrandir í von um að sjá einhverja ísbirni og Gugga er að gifta elsta son sinn um helgina.

Örvæntið því eigi þó lítil hreyfing verði á síðunni enda "langt til jóla og ekkert liggur á" en niðurtalning til næsta hippaballs á Ketilásnum tikkar hér til hliðar.  

Magga er með tölvu og gæti allt eins skellt einhverju hér inn úr sólinni syðra, hver veit?  

Gugga mun gera upp Ketilásdæmið í næstu viku og vonandi getum við birt einhverjar tölur um t.d. hve mikið varð eftir fyrir Ketiláshúsið. 

Ippa, Magga og Gugga Kissing

Eric Clapton

Ég man eftir þessu lagi á böllunum hér áður fyrr.  Sérstaklega með hljómsveitinni Júdas og við stelpurnar á Sigló vorum dyggir aðdáendur! Tengi það þó ekkert sérstaklega við Ketilásinn en gaman að láta það fljóta með þar sem tónleikar með kappanum Eric Clapton eru annað kvöld og ég var svo ljónheppin að vera óvænt boðið með vinkonu minni henni Sigríði Hrönn! Wink


"Nýhippar"

Ég horfði á skemmtilegan þátt í ríkissjónvarpinu í gær. " Summer of love" eða "Sumarið ´67" heitir hann.  Þetta var annar þáttur af fjórum. Hann fjallaði um hippa og hippamenningu.  Þátturinn sem var mjög fróðlegur endaði á viðtali þar sem fullyrt var að hippamenningin myndi blómstra á internetinu.  Þrátt fyrir að verið væri að leggja þessi samfélög hippa markvisst í rúst.  T.d. með lokun og niðurrifi í Kristjaníu og einnig aðför Ronalds Reegans að San Fransisco hippunum á hans valdatíma. 

sol.sm.logo

Fólk myndi tengsl sín á milli og hópast saman í "hippakommúnur" á netinu.

Kannski er það það sem við höfum verið að gera hér á Ketilássíðunni?  Meðvitað eða ómeðvitað.

Ást og friður er alla vega eitthvað sem við leggjum upp með en sleppum eiturlyfjunum.Heart  

"Nýhippar" eru mun fróðari um skaðsemi þeirra en forverar þeirra!

Látum frjálsar ástir liggja milli hluta.Cool  

Hvað segið þið um "nýhippaball" á Ketilásnum að ári?

 

Ippa 

 


Niðurtalning og viðburðir að Ketilási

Ágústa og ÁsaNiðurtalning fyrir næsta hippaball er hafin hér til hliðar eins og fram hefur komið undir yfirskriftinni "Á SAMA TÍMA AÐ ÁRI". Einnig vonumst við til að þessi síða verði notuð til að kynna það sem fram fer að Ketilási hverju sinni.  Fylgist með!

........Nefndin óstöðvandi! Wink


Dönsuðum eftir þessu lagi með Stormum á Ketilási...

......alveg æðislega gaman á hippaballinu. InLove

Um leið minnum við alla á að fara vel með dýrin sín........Ippa Kissing


Hvernig var "á Geirmundi"?

Það væri gaman að fá fréttir af ballinu með Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar sem var núna um Verslunnamannahelgina á Ketilásnum!

Var ekki fjör?

Ég trúi að hin eina sanna Ketilásstemning hafi ríkt.  Þó svo að Geirmundur hafi meira spilað í Miðgarði og í kring um Sauðárkrók í "denn", þá er alltaf gaman að fara í syngjandi sveiflu með honum.

Full-Swing-II

 

 

 

 

 

 

 

 

      .......Ippa 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 245409

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband