Sálin á flakk?

Nú langar mig að segja eina yfirnáttúrulega sögu tengda Ketilási (óbeint).  Ég var í vegavinnu sumurin 1981 og 1982.  Það var m.a. verið að leggja nýjan veg fyrir Mánárskriður (Mánaðarskriður eins og Inga á Eyri kallaði þær). Það var árið 1981 að skúrarnir voru í lægðardragi milli Mánárskriðanna og Almenningsnafar.  Í dálitlu vari frá þjóðveginum.  

Þetta sumar kom sprengisérfræðingur til að sprengja fyrir nýja veginum en það var verið að lækka  hann og gera hann þægilegri yfirferðar en hann var eins og margir muna lagður í sneiðing upp og niður snarbrattar hlíðarnar. Ekkert ósvipað og Ólafsfjarðarmúlinn bara styttri vegalengd.Sprengisérfræðingurinn sagði okkur sögur af yfirnáttúrulegri reynslu sem hann hafði orðið fyrir í starfi sínu.  M.a. frá því að huldufólk heimsótti hann og gerði hnum grein fyrir afleiðingum þess ef það yrði sprengt þar sem það bjó.

Eina helgina sem oftar var farið á ball á Ketilási.  Þannig var að það var frí um helgar og flestir fóru heim til sín.  Sprengisérfræðingurinn var að sunnan og hélt því til í skúrunum yfir helgina.  

 

Ég var bílstjóri þetta föstudagskvöld.  Ballið var búið klukkan tvö og fljótlega tókst mér að smala samferðafólkinu inn í bílinn.  Þegar við svo ókum fram hjá skúrunum klukkan tíu mínútu í þrjú varð mér hugsað til sprengisérfræðingsins og sagði við fólkið í bílnum en það vann ekki með mér í vegavinnunni "það er einn maður í skúrunum og það væri nú nógu gaman að hrekkja hann pínulítið"  en keyrði bara áfram án þess að stoppa og skilaði þeim sem með mér voru heim og hélt svo heim til mín.

Þegar ég svo mætti til vinnu á mánudagsmorgni var sprengisérfræðingurinn fyrsti maður í morgunmat og spurði mig með hálfgerðu þjósti, "hvað varst þú að gera hér aðfarnótt laugardagsins?"  

"ÉG, ég kom ekkert við sagði ég en ég keyrði framhjá".  

"Þú sviptir upp hurðinni á skúrnum mínum og horfðir á mig skellihlæjandi" sagði hann "og svo varstu rokin".  

"Klukkan hvað var þetta?" Spurði ég. 

"Klukkan tíu mínútur í þrjú " svaraði hann.

 

Kveðja, Ippa 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Margrét Traustadóttir

Segið svo að yfirnáttúrulegir hlutir eigi sér ekki stað.......

Hulda Margrét Traustadóttir, 17.2.2008 kl. 14:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 17
  • Sl. sólarhring: 32
  • Sl. viku: 83
  • Frá upphafi: 249349

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 9
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Apríl 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband