24.7.2008 | 00:46
Þakkargjörð áfram...
Þakklætið er móðir svo margra góðra tilfinninga. Þess vegna er gott að vera þakklátur. Þakklæti okkar í nefndinni beinist að svo mörgum en við erum að reyna að koma því skipulega til skila. Við erum afar þakklátar öllum þeim sem hafa hjálpað okkur við kynningar á Kome back hippaballinu okkar á laugardaginn. Þar má nefna blað Siglfirðingafélagsins og vef Fjallabyggðar, "Lífið á Sigló" og Steingrím Kristinsson, skagafjordur.com og Rögnvald Valbergsson, Morgunblaðið og hann Hjálmar blaðamann sem kom kaffihúsakjaftæðinu í okkur stöllum í undirbúningsnefndinni ótrúlega vel til skila. DV og Jón Bjarki eiga einnig okkar þakklæti jafnvel þó umfjöllunin sé ekki komin erum við traustið uppmálað þar sem við könnumst við kauða og vitum að vönduð vinnubrögð eru hans ær og kýr, sveitarfélögin Skagafjörður og Fjallabyggð sem hafa létt undir með okkur og greitt götu okkar með stuðningi við að auglýsa atburðinn, þakklátar Tunnunni og Sjónarhorni og RUVAK sem tók okkur afar vel og það verður spennandi að vita hvernig tekst til með viðtal hjá þeim sem stendur til að verði á föstudaginn. Svo þökkum við auðvitað ykkur öllum sem hafið fylgst með og breitt út "boðskapinn" og sem mætið gallvösk á Ketilásinn á laugardagskvöldið. Ef fleiri fjölmiðlar vilja fá þakkir í þessari þakkargjörð verða þeir hinir sömu að bregðast skjótt við og hafa samband við okkur og óska eftir viðtali eða upplýsnigum um ballið góða!
P.S Fréttablaðið er komið í hóp velgjörðarmanna okkar og verður viðtal við Möggu formann í blaðinu á morgun, föstuaginn 25. júlí. Blaðamaður Fréttablaðsins hyggst aukin heldur mæta á ballið takk fyrir! Einnig var Morgunútvarp Rásar 2 með viðtal við Theódór Júlíusson söngvara Storma í morgun. Glæsilegt!!
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 28
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 248228
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- agny
- andres
- baldurkr
- birgitta
- bjarkey
- bjarnihardar
- blues
- brahim
- gattin
- dabbi
- saxi
- ea
- geirfz
- gthg
- vild
- hannesgi
- herdis
- smalinn
- hlynurh
- maggatrausta
- ingibjorgstefans
- astromix
- jensgud
- nonniblogg
- jullibrjans
- ksig58
- kiddirokk
- lks
- maggimark
- mariaannakristjansdottir
- motiv
- nanna
- solir
- ottarfelix
- palmig
- ronnihauks
- seljanesaett
- sigurjonth
- sms
- bjre
- stebbifr
- stefanjon
- fugla
- valgerdurhalldorsdottir
- nytthugarfar
- ippa
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Af mbl.is
Erlent
- Hvað er Trump búinn að gera?
- ESB bannar notkun á BPA í umbúðum um matvæli
- Níu handteknir vegna brunans á skíðahótelinu
- Trump myndi hugnast kaup Musks á TikTok
- Hafa til klukkan 17 til að senda starfsmenn í leyfi
- Heita því að tryggja þjóðaröryggi sitt
- Sakar biskupinn um viðurstyggilegan tón
- Fjórir særðir eftir stunguárás í Tel Aviv
Athugasemdir
Rétt og svo verður að koma sérstakur pistill um hljómsveitina, án hennar hefði þetta ekki verið svona spennandi !MT
Ketilás, 24.7.2008 kl. 06:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.