Elton....


Yndislegur...munið að smella á litlu gluggana eftir lagið ef þið viljið fleiri lög með honum.
 
Njótið, Ippa. 

Upphringing....

Það hringdi í mig gömul vinkona mín sem hafði heyrt af síðunni og vildi láta vita að hún væri ánægð með framtakið ! ´

Hún var "á föstu" lengi eftir að hafa hitt "sjarmör" einn mikin frá 'Olafsfirði. Að vísu entist það samband ekki nema einhverja mánuði frekar en mörg önnur en hún bað mig að segja að minningarnar frá þessum stað væru afar sterkar. Hvort hún kæmi á ballið ? ekki spurning - auðvitað kem ég var svarið !

Frábær viðbrögð. MT


Uriah Heep

Æðislegt fjör.....Ippa

Svartir dagar.....

....svo er það hin hliðin.....barst einnig með tölvupósti.....

Ég var álitin hálfgerður ógæfumaður, þar sem ég drakk drjúgt á þessum árum....samt eignaðist ég nokkra vini á Ketilásböllunum, var kannski að koma úr syglingu með nóg af víni og bjór og gaf í allar áttir. Stundum mundi ég ekkert frá þessum blessuðu böllum, en einhvernvegin situr í mér minning um góða tíma, þó aðallega glaðværð og bros og smá knús frá drykkjufélögum ! Stelpurnar voru ofursætar í hippa dressunum sínum ! Ég er búin að vera edrú í nokkur ár og hver veit nema ég kíki á Ketilás í sumar, ég veit að sumir félagarnir eru fallnir frá en gaman væri að sjá hvernig öll hin hafa haldið sér á floti í gegn um lífsins ólgusjó - Peace -....ónefndur vinur

Við berum virðingu fyrir þér, takk fyrir að láta vita af þér ! MT


Sálin á flakk?

Nú langar mig að segja eina yfirnáttúrulega sögu tengda Ketilási (óbeint).  Ég var í vegavinnu sumurin 1981 og 1982.  Það var m.a. verið að leggja nýjan veg fyrir Mánárskriður (Mánaðarskriður eins og Inga á Eyri kallaði þær). Það var árið 1981 að skúrarnir voru í lægðardragi milli Mánárskriðanna og Almenningsnafar.  Í dálitlu vari frá þjóðveginum.  

Þetta sumar kom sprengisérfræðingur til að sprengja fyrir nýja veginum en það var verið að lækka  hann og gera hann þægilegri yfirferðar en hann var eins og margir muna lagður í sneiðing upp og niður snarbrattar hlíðarnar. Ekkert ósvipað og Ólafsfjarðarmúlinn bara styttri vegalengd.Sprengisérfræðingurinn sagði okkur sögur af yfirnáttúrulegri reynslu sem hann hafði orðið fyrir í starfi sínu.  M.a. frá því að huldufólk heimsótti hann og gerði hnum grein fyrir afleiðingum þess ef það yrði sprengt þar sem það bjó.

Eina helgina sem oftar var farið á ball á Ketilási.  Þannig var að það var frí um helgar og flestir fóru heim til sín.  Sprengisérfræðingurinn var að sunnan og hélt því til í skúrunum yfir helgina.  

 

Ég var bílstjóri þetta föstudagskvöld.  Ballið var búið klukkan tvö og fljótlega tókst mér að smala samferðafólkinu inn í bílinn.  Þegar við svo ókum fram hjá skúrunum klukkan tíu mínútu í þrjú varð mér hugsað til sprengisérfræðingsins og sagði við fólkið í bílnum en það vann ekki með mér í vegavinnunni "það er einn maður í skúrunum og það væri nú nógu gaman að hrekkja hann pínulítið"  en keyrði bara áfram án þess að stoppa og skilaði þeim sem með mér voru heim og hélt svo heim til mín.

Þegar ég svo mætti til vinnu á mánudagsmorgni var sprengisérfræðingurinn fyrsti maður í morgunmat og spurði mig með hálfgerðu þjósti, "hvað varst þú að gera hér aðfarnótt laugardagsins?"  

"ÉG, ég kom ekkert við sagði ég en ég keyrði framhjá".  

"Þú sviptir upp hurðinni á skúrnum mínum og horfðir á mig skellihlæjandi" sagði hann "og svo varstu rokin".  

"Klukkan hvað var þetta?" Spurði ég. 

"Klukkan tíu mínútur í þrjú " svaraði hann.

 

Kveðja, Ippa 


Father and son - Cat Stevens


Frábært og í takt við hippaárin....
 
Ippa 

Minni á

ippa@simnet.is (Vilborg) og jose.mor@simnet.is (merkt Magga) endilega látið vita af ykkur.

MT


Enga feimni......

Við sjáum að fólk er tilbúið að segja reynslusögur af Ketilásböllum - bara skemmtilegt. !!!

Væri gaman að fá fleiri svona í bland við frábæra tónlist sem Vilborg finnur fyrir okkur í takt við tíðarandann ! MT Kannski kem ég með eina undir nafni áður en langt um líður......Pinch


Þessi er svolítið bitur.....

Einnig aðsent í emali...engin nöfn, bara reynslusögur.....

 

" Ég eignaðist sæta kærustu og við hittumst í fyrsta inn á Ketilásballi, æ hún var svo sæt og ljúf og dansaði svo dásamlega.........

Við vorum kærustupar og ég hélt að hún elskaði mig afar mikið.  Á eitt ballið kom ég svolítið seint og hvað sá ég - mín sæta kærasta var í vangadansi við annan strák. Hjarta mitt stoppaði eitt augnablik.

Ég var reiður, þarna hafði einhver gaur tekið fram fyrir hendurnar á mér - og ég var afar sár.

Þetta kvöld leit hún ekki við mér - ég vissi ekki hvað ég hafði gert af mér. Ég fékk aldrei að vita afhverju þetta fór svona.....en tíu árum seinna hitti ég hana og það eina sem ég fékk að vita, var að ég hefði komið of seint. Frjálsar ástir, hver var að tala um þær ......................ég er að hugsa....ég er 54. ára í dag, ég er giftur en hvar er þessi áfjáða ást sem byrtist í kossum og faðmlögum og..... ?????....................

 

Frábært, tjáið ykkur endilega....MT

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.9.): 5
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 150
  • Frá upphafi: 251216

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Sept. 2025
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband