Tjaldstæðið opið, góð aðstaða, rafmagn og vatn.

Minnum á að tjaldstæðið á Ketilási er opið og þar er góð aðstaða fyrir húsbíla sem og tjöld, fellihýsi og húsvagna.  Einnig er gistingu að fá bæði á Bjarnagili og Lambanes-Reykjum og eflaust víðar. Það er líka um að gera að "setjast upp" hjá vinum og kunningjum.  Stutt er á Sigló, Ólafsfjörð og til Dalvíkur um nýju Héðinsfjarðargöngin og gömlu Ólafsfjarðarmúlagöngin.  Einnig er stutt á Sauðárkrók og Skagafjörðurinn allur blasir við enda eru Fljótin i Skagafirði!  Veðrið verður yndislegt eins og alltaf en það höfðum við löngu pantað svo það kemur ekki á óvart Cool.   Röggi á Nýrækt mun stjórna kvöldvöku á föstudagskvöldið þar sem öllum gefst kostur á að "láta ljós sitt skína". Einskonar upphitun fyrir "stóru stundina" Wink!   Markaðurinn á laugardaginn verður fjölbreyttur og flottur þar sem hægt verður að fá hippalúkkið á hreint m.a.s. lakkaðar hippaneglur. Ýmislegt annað misjafnlega "dularfullt" verður í boði.  Blómálfarnir sem eru fábærir tónlistarmenn munu svo skemmta okkur á laugardagskvöldið frá klukkan 22.00-02.00 eftir miðnætti alveg eins og í "gamla daga".  Við byrjum kvöldið með því að mynda peace-merki á Ketilástúninu og munu þeir Blómálfarnir taka þátt í því.  Því er um að gera að mæta tímanlega og skemmta sér saman.  Missum ekki af neinu, MÆTUM. Heart

Indian-Dance-IMG 5186


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 6
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 245372

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband