24.7.2012 | 22:33
Ballið búið - þvílíkt fjör - besta ballið - þetta fer bara batnandi.
Kæru vinir og velunnarar Ketiláss. Nú er hippaballið búið þetta árið og mikið var gaman. Veðurfræðingarnir voru reyndar að stríða okkur ásamt því að mikið var um að vera í fjórðungnum. Bæði ball í Miðgarði og á Siglufirði.
Ketiláshúsið er ekki stórt og þar eru engar vínveitingar þannig að því miður verðum við að hafa miðaverð í samræmi við það. Það hamlaði þó ekki gleði gesta sem greinilega voru komnir til að skemmta sér fyrir ALLAN peninginn.
Sennilega líka búnir að reikna út hagnaðinn af því að mæta með bjórkippu þar sem einn bjór er á 300 kall (260 kall minni bjórarnir) miðað við að kaupa hann úr krana á 800 kall glasið á vínveitingastað. Að maður tali nú ekki um eitthvað sterkara!!!
Blómálfarnir þeir Maggi og Finnbogi Kjartans og Ari Jónsson eru fagmenn fram í fingurgóma og eiga þakkir skildar fyrir sitt framlag að æfa upp og spila gömlu góðu lögin okkar en auðvitað kostar sitt að fá svona "eðal-hippa" á svæðið.
Endar ná því naumlega saman þetta árið en við systur bættum allri innkomu okkar af markaði inn í dæmið og tökum ekkert sjálfar fyrir okkar vinnu sem reyndar hvorki við eða Gugga höfum gert fram til þessa. Auk þess að við borguðum okkur inn á dansleikinn sjálfar.
Þegar upp er staðið vantar lítillega upp á að þessu sinni þannig að það verður ekki afgangur fyrir húsið í ár þó þetta rétt dugi fyrir lágmarks húsaleigu.
Við erum þó nokkuð glaðar með okkur og borgum það sem á vantar með glöðu geði sjálfar.
Hippar hafa ekki áhyggjur af peningum þegar ást og friður er annars vegar.
Vilborg Traustadóttir (Ippa) ritari

Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.10.): 21
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 93
- Frá upphafi: 251454
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 40
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
agny
-
andres
-
baldurkr
-
birgitta
-
bjarkey
-
bjarnihardar
-
blues
-
brahim
-
gattin
-
dabbi
-
saxi
-
ea
-
geirfz
-
gthg
-
vild
-
hannesgi
-
herdis
-
smalinn
-
hlynurh
-
maggatrausta
-
ingibjorgstefans
-
astromix
-
jensgud
-
nonniblogg
-
jullibrjans
-
ksig58
-
kiddirokk
-
lks
-
maggimark
-
mariaannakristjansdottir
-
motiv
-
nanna
-
solir
-
ottarfelix
-
palmig
-
ronnihauks
-
seljanesaett
-
sigurjonth
-
sms
-
bjre
-
stebbifr
-
stefanjon
-
fugla
-
valgerdurhalldorsdottir
-
nytthugarfar
-
ippa
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Af mbl.is
Nýjustu færslurnar
- Mannkynssagan er mörkuð af frægum persónum eins og Gretu Thunberg. Stundum tapar sannleikurinn í mannkynssögunni og mýtan verður ofaná. Er kristnin þannig?
- Ef þessi tafla getur hjálpað við að ákveða magn af ivermectin í mg á kíló en fá fleiri umsagnir
- Samkeppnis kapítalistarnir fljúga frá skuldum.
- Ég óttast að - Sáttmáli við bandr. ríkið - Trump vill Háskólar landsins undirgangist; feli í sér upphaf á opinberri ritskoðun í Bandaríkjunum á vísindum! Er gæti leitt til hugsanlega mikils tjóns fyrir vísindi þar í landi!
- Skrattinn úr sauðarleggnum frá Brüssel
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.