25.2.2008 | 11:47
5500 gestir
Reyndar yfir 5600 búnir að heimsækja síðuna. Nú er lag að koma á framfæri óskum um fyrirkomulag á ballinu okkar 26. júlí n.k. Ætlað fyrir 45 ára og eldri. Við erum sem sagt búnar að bóka Ketiláshúsið það kvöld og hljómsveitin Stormar var mjög áhugasöm síðast þegar fréttist. Uppi eru hugmyndir um að lengja partýið og hafa helgina undir ýmsa listviðburði. Gaman væri að heyra í ykkur um hver áhuginn er. Gaman væri að heyra í Fljótamönnum um það hvort þeir verði í stuði fyrir mikið gaman og mikið grín þessa helgi. Gaman væri að heyra í Siglfirðingum og Ólafsfirðingum (sameiginlegum Fjallabyggðarbúum) um það hvort þeir mæti ekki gallvaskir á staðinn? Skagfirðingar eins og þeir leggja sig mega alveg láta i sér heyra. Koma svo......
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 28
- Sl. sólarhring: 28
- Sl. viku: 81
- Frá upphafi: 248228
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- agny
- andres
- baldurkr
- birgitta
- bjarkey
- bjarnihardar
- blues
- brahim
- gattin
- dabbi
- saxi
- ea
- geirfz
- gthg
- vild
- hannesgi
- herdis
- smalinn
- hlynurh
- maggatrausta
- ingibjorgstefans
- astromix
- jensgud
- nonniblogg
- jullibrjans
- ksig58
- kiddirokk
- lks
- maggimark
- mariaannakristjansdottir
- motiv
- nanna
- solir
- ottarfelix
- palmig
- ronnihauks
- seljanesaett
- sigurjonth
- sms
- bjre
- stebbifr
- stefanjon
- fugla
- valgerdurhalldorsdottir
- nytthugarfar
- ippa
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Af mbl.is
Viðskipti
- Grallarar á bak við tilboðið
- Íslandsbanki og VÍS í samstarf
- Ríkisstarfsmenn elta vildarpunkta
- Var um tíma hætt að lítast á blikuna
- Stefnt að afgreiðslu Íslandsbankasölu á vorþingi
- Jakob Ásmundsson nýr framkvæmdastjóri DTE
- Slakt þjónustustig stofnana
- Hlutfall Marels í OMX 15 mun halda áfram að minnka
- Munurinn sýni fram á einokun
- Samdráttur í sölu kampavíns í fyrra
Athugasemdir
Hæ Ippa, ég var byrjaður að pússa gömlu dansskóna fyrir nokkrum árum akkúrat í þessum tilgangi að halda ball á Ketilási, sælla minninga. Bar erindið undir nokkra félaga frá Sigló og Ólafsfirði, allir fengu þeir stjörnur í augun þannig að ég held það sé fínn grundvöllur fyrir balli. það væri líka spennandi að vera líka með annarskonar uppákomur þessa helgi tónlist, myndlist, leiklist, matarlist eða hvað eina. Allavega þá er ég til í að leggja hönd á póginn.
Kveðja Valur, Ólafsfirðingur
P.s. verða ekki settar upp heysátur???
Valur Þór Hilmarsson (IP-tala skráð) 25.2.2008 kl. 15:04
Hæ Valur. Gaman að heyra í þér. Jú heysátur er málið! ;-) . Það er gott að heyra þetta með að eiga von á aðstoð frá þér, það vantar gjaldkera ennþá (höfum ekki gert mikið í að fá nýjan). Flott ef þú eða Magga Steingríms væri til í það. Ég er með e-mail ippa@simnet.is
Við þyrftum að hittast og leggja á ráðin um þetta allt saman! Ég get alltaf skroppið norður til möggu systir eins og eina helgi eða svo.
Bæ í bili.
Ketilás, 25.2.2008 kl. 17:45
Sæll Valur. Gott að fá einhver viðbrögð, takk fyrir það. Og gaman að heyra að fleiri hafa haft áhuga fyrir að rusla upp balli á Ketilási, á ekki að vera neitt stórmál. Það þótti við hæfi þegar við þrjú byrjuðum að ræða um ballið að heysátur yrðu á túninu....þetta þarf allt að ræða og ef ég þekki hana Ippu rétt verður hún búin að svara þér í kvöld.
Kv. MT
Ketilás, 25.2.2008 kl. 17:45
mikið vorum við systur samtaka..... MT
Ketilás, 25.2.2008 kl. 17:46
He he Ippa hér .....ótrúlega samtaka
Ketilás, 25.2.2008 kl. 17:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.