13.3.2008 | 19:29
Pestarkvæði
Þar sem ýmsar pestir hefa herjað á landann í vetur þá er ekki laust við það að sumir hafi fengið nóg !!!!
neðanritað kom úr "bransanum"
Nú líður mér illa,
lasinn er ég,
margs konar kvilla
merki ber ég,
um allan skrokkinn
frá skalla að il
mér finnst ég alls staðar
finna til.
Þessi andskoti birtist í ýmsum myndum,
- fjölbreytnin er með ólíkindum:
í vindverkjum sterkum,
vondu kvefi,
ræmu í kverkum
rennsli úr nefi,
svo er þrálátur hósti
og þyngsli fyrir brjósti,
en beinverkir þjarma að baki og fótum,
og það brakar í öllum liðamótum,
þar grasserar sem sé giktarfjandi,
sem almennt er talinn ólæknandi.
Þá er sljóleiki í augum,
en slappelsi á taugum,
og svo þessi eilífa syfja,
eða sárindin milli rifja,
og óþægindi í einhverri mynd,
oftast báðu megin við þind.
Yfir höfðinu er þessi þráláti svimi,
en þreyta gagntekur alla limi.
Loks fylgir þessu lítill máttur,
óreglulegur andardráttur,
bólgnir eitlar og blásvört tunga,
bronkíttis í hægra lunga.
Svo safnast á skrokkinn skvapkennd fita
þótt ég skeri við nögl hvern matarbita,
og í sjö vikur hef ég,
segi og rita,
sofnað með köldu og vaknað með hita.
Samt hefði ég aldrei uppphátt kvartað,
ef lasleikinn væri ekki lagstur á hjartað,
þar hef ég nú stöðuga stingi,
sem stafa af of háum blóðþrýstingi.
Og lon og donhjá læknum er ég,
með litla vonfrá langflestum fer ég,
því að lítið er gagnið
að geislum, bökstrum og sprautum
við svona fjölbreyttri
vanlíðan og þrautum.
Það ber helst við
að mér batni á köflum
af brúnum skömmtum
og magnyl töflum.
Sem sagt: ég er á eilífum hlaupum
milli sérfróðra lækna og í lyfjakaupum.
Já, útlitið er ekki gott.
Ég þoli orðið hvorki þurrt né vott,
það er að segja fæði.
Og friðlaus af fjörefnaskorti
til fróunar mér ég orti
þetta kvalastillandi kvæði.
(Fékk þetta sent frá Öllu á Nýrækt eða "Nýræktarsystkinunum" . Það verða allir að vera búnir að jafna sig á öllum pestum þann 26. júlí þegar ballið okkar verður á Ketilási). Kveðja Ippa
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (29.1.): 13
- Sl. sólarhring: 13
- Sl. viku: 110
- Frá upphafi: 248338
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 10
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- agny
- andres
- baldurkr
- birgitta
- bjarkey
- bjarnihardar
- blues
- brahim
- gattin
- dabbi
- saxi
- ea
- geirfz
- gthg
- vild
- hannesgi
- herdis
- smalinn
- hlynurh
- maggatrausta
- ingibjorgstefans
- astromix
- jensgud
- nonniblogg
- jullibrjans
- ksig58
- kiddirokk
- lks
- maggimark
- mariaannakristjansdottir
- motiv
- nanna
- solir
- ottarfelix
- palmig
- ronnihauks
- seljanesaett
- sigurjonth
- sms
- bjre
- stebbifr
- stefanjon
- fugla
- valgerdurhalldorsdottir
- nytthugarfar
- ippa
Eldri færslur
2013
2012
2011
2010
2009
2008
Nýjustu færslurnar
- Virkjanaóði krataráðherrann
- Tuttugastiogníundijanúartvöþúsundtuttuguogfimm
- Í tilefni af þeim íslensku BÓKMENNTAVERÐLAUNUM sem að munu verða veitt í kvöld að þá er hérna merkileg bók eftir erlendan höfund sem að búið er að þýða yfir á ÍSLENSKU:
- Sjálfshól sem minnir á skipbrotið mikkla !
- Það gengur vel hjá kananum, verr hjá okkur
Athugasemdir
Achhhhhhhhhhhh ég ligg í flensu núna og ég skal svo sannarlega vera búinn að jafna mig í Júlí. Því skal ég lofa þér. Flott kvæði. Veiztu hver orti? Með beztu keðju.
bumba (IP-tala skráð) 13.3.2008 kl. 19:55
Hef ekki hugmynd um hver orti, því miður. Já þú verður að vera hress á Ásnum í sumar. :-) Góðan bata!!!
Ketilás, 13.3.2008 kl. 20:38
Skondin texti. Gaman að þessu. Hef verið upptekin þessa viku en fer nú að snúa mér meira að því að hjálpa þér með síðuna. Þú ert dugleg í þessu !
Hulda Margrét Traustadóttir, 14.3.2008 kl. 08:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.