Tæpur mánuður til stefnu..................

Halló öll sömul

Já, það er tæplega mánuður þar til við hittumst á balli aldarinnar 45. ára og eldri á Ketilási þann 26.07.08. Stormar sjá um fjörið.

Það verður gaman að sjá ykkur öll, ævin líður svo hratt og við gerum okkur varla grein fyrir hversu hratt ! Ég undirrituð er að vinna með ungu fólki í dag aðalega stelpum sem eru alveg æðislega skemmtilegar og tala við mig frjálslega um alla hluti, samt finnst mér ekkert hafa breyst, mér finnst ég detta inní það sem þær eru að ganga í gegn um í dag....óléttur, ótímabærar eða ekki, viðskilnaði við kærasta, grát og gnístran tanna, veröldin er alveg búin að snúa við þeim bakinu o.s.f.r.v......sem sagt allt komið í þrot oft en ....einhvernvegin vinnst þó vel úr þessu öllu - alltaf og einhvernvegin.

Maður getur svo sem ekki mikið sagt annað en það að einu sinni var ég líka ung, átti einhverja kærasta og það skiptust á skin og skúrir á þeim árum eins og í dag, en oftar en ekki fæ ég viðbrögð frá stelpunum mínum eins og þessi  " Mér þykir svo vænt um þig" eða "Takk fyrir að sýna mér þessa tillitsemi"....." Hvernig getur þú skilið mig svona vel "?Comon,  ég er nú ekki svo gömul hehehehe. Og þá hugsar maður..."Hvað hefur breyst" ? Akkurat ekkert - tilfinningar og þrár eru þær sömu - vonir og væntingar eru þær sömu, og ástin er óútreiknanleg.

En í dag erum við sem ætlum að hittast á Ketilási fullorðið fólk - hvernig sem okkur hefur tekist að vinna úr okkar lífi, þá langar okkur til þess að hittast og kasta kveðju hvort á annað tala saman og skemmta okkur og dansa með gamla laginu, eitthvað svona hippies og hliðar saman hliðar.Wink

Nú er tækifærið.

" Allt sem við viljum er friður á jörð."

26.07.2008 er dagurinn. Ketilásball og STORMAR að spila við ætlum að syngja og tralla og vera hippar um stund eins og í gamla daga.

Mikið verður gaman hjá okkur - það verður sól og sumar og gleði í lofti !

Hittumst glöð og kát á Ketilási í sumar !Smile

Þurfum við að segja nokkuð meira ?

En svo sannarlega höldum við áfram að setja inn á þessa síðu það sem er að gerast í undirbúningi að ballinu fram að því.

Meira síðar Cool Kveðja til Djúpuvíkur þar sem Vilborg er þessa dagana og til Guggu sem sennilega er á Stóru Reykjum í Fljótum núna.

Love and peace !

Magga

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Marín Kristinsdóttir

ketilási í fljótunum ?

Hulda Marín Kristinsdóttir, 28.6.2008 kl. 18:05

2 Smámynd: Ketilás

Já, Ketilás í Fljótum, nálægt Siglufirði !

Ketilás, 28.6.2008 kl. 18:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.4.): 21
  • Sl. sólarhring: 21
  • Sl. viku: 96
  • Frá upphafi: 245218

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband