Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
13.2.2008 | 22:53
Varalitur í skyrtukraga
Það hefur ýmislegt gerst á honum Ketilási. Mig langar að segja ykkur sanna sögu af mér og vinkonu minni. Það hafði verið einhvers konar fundur hjá bændunum í Fljótum á Ketilási og ball um kvöldið. Ég og vinkona mín mættum hressar að vanda því ballið var opið öllum. Okkur þótti bera vel í veiði þar sem svo margir af bændum og búaliði voru mættir á svæðið. Skyndilega heyri ég hvellan hlátur Huldu vinkonu og sá einn bóndinn í öngum sínum reyna að þurrka varalit úr skyrtukraganum .
Þá datt henni í hug að láta hann líta illa út í augum eiginkonunnar þegar heim kæmi. Auðvitað fengu allir hinir bændurnir sömu meðferð hjá okkur báðum. Ballið snerist upp í baráttu okkar við að komast í návígi við karlpeninginn til að merkja skyrtukragann með varalit.
Það sem við skemmtum okkur við þessa iðju en bændurnir voru á hröðum flótta undan okkur allt kvöldið. Ekki fylgir sögunni hvort Fljótamenn hafi þurft að endurnýja spariskyrturnar sínar eftir þetta kvöld. Það væri kannski hugmynd að láta hluta af hugsanlegum ágóða af ballinu okkar 26. júlí 2008 renna í "skyrtusjóð" vegna þessara spjalla sem við vinkonurnar ullum?
Alla vega væri hugsanlegt að stofna einhvers konar sjóð til að huga að viðhaldi Ketiláshússins en ég þykist vita að sé aldrei vanþörf á peningum í slíkt?
Bara hugmynd!
Eiginkonur nú vitið þið sannleikann, þó seint sé...
Góðar stundir...Ippa
Bloggar | Breytt 14.2.2008 kl. 11:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.2.2008 | 12:13
Góðan daginn!
Talandi um hressa krakka og slagsmál!!!!!!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.2.2008 | 11:37
Hressir krakkar....
Hvað er það sem gerir árin frá 1968 og næstu ár þar á eftir svona eftirminnileg fyrir okkur sem vorum dugleg að fara á Ketilás böllin. Fyrst og fremst vorum við náttúrulega á þeim aldri sem unglingar skemmta sér hvað mest þeir mega, svo var það hippamenningin, mjög spennandi og sá fatnaður sem fylgdi, og svo auðvitað tónlistin. Allar þær frábæru hljómsveitir sem lifa með okkur enn í dag og þeirra tónlist.
Það var sérstök tilfinning að fara með rútunni frá Sigló, allir í syngjandi góðu skapi og strákarnir með pela í rassvasanum stundum keyptum við stelpurnar eitthvað saman, einn ungling eða svo, sem svo var kallaður og blönduðum í gos. Hvað var svo helst drukkið ? Ekki var það bjórinn ja nema einhver hefði verið að koma úr siglingu nei genever, wodki og íslenskt brennivín held ég að algengast hafi verið að fólk hafi verið með með sér. Já og hvannarótarbrennivín. Svo var auðvitað sungið hátt og mikið í rútunni.
Stundum urðu slagsmál á milli manna á Ketilás hlaðinu eða túninu og oft voru það Ólafsfirðingar og Siglfirðingar sem slógust. Alltaf var lögreglubíll frá Siglufirði á hlaðinu og mönnum þá stungið þangað ef á þurfti að halda. En oftast tókst mönnum að leysa málin og halda áfram að skemmta sér.
Þegar ég bjó á Reyðarfirði samdi ég leikrit og setti upp ásamt krökkum í níunda bekk Grunnskóla Reyðarfjarðar og við kölluðum það 68 kynslóðin Það var skemmtileg vinna og tókst vel til. Hressir krakkar þar líka.Síðast vissi ég til þess að það leikrit var sett upp í Reykholtsskóla með unglingum, þar og frænka mín ein lék í leikritinu, en vissi því miður ekki af þeirri uppsetningu firr en síðar.
Svona getur fortíðin orðið til þess að maður finnur þörf hjá sér að reyna að endurspegla gamla tíma. Já, þetta voru skemmtileg ár. Og hressir krakkar.
Allt sem við viljum er friður á jörð
MT
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
11.2.2008 | 23:03
No milk today
Bloggar | Breytt 12.2.2008 kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2008 | 20:48
Barnaskólabrek
Ég og vinkona mín Alla á Nýrækt vorum í fermingarfræðslu á Ketilásnum. Þar sem við vorum í barnaskóla. Presturinn séra Sigurpáll Hofsósklerkur var eitthvað seinn fyrir einn daginn. Í litlu kjallaraherbergi undir kennslustofunni á Ketilásnum sem er uppi í litlu hliðarherbergi var kolageymsla. Þarna var ennþá kolaryk. Okkur datt það snjallræði í hug að athuga hvort presturinn hræddist drauga. Ég fann stór stígvél þarna niðri og ataði þau í kolasalla. Héldum við svo á stígvélunum upp í kennslustofuna og ég gekk svo aftur á bak niður tröppurnar og svo földum við okkur í kjallaranum
Þegar séra Sigurpáll svo loksins mætti lágu sótug stór stígvélaför upp tröppurnar en enginn var í stofunni!
Ég held að þessi gáta gæti enn verið óleyst ef við hefðum ekki komið upp um okkur með tísti og "píkuskrækjum" úr kjallaranum!
Ketilásinn geymir góðar minningar. Set hér inn eina og eina sögu meðfram upplýsingum um "dansleik aldarinnar"!
Ippa
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.2.2008 | 14:19
Svar til Margrétar....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.2.2008 | 12:52
Meira fyrir "Möggurnar" mínar
Mér er farið að líða eins og plötusnúð!
Ippa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.2.2008 | 15:13
Fyrir "Möggurnar" mínar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.2.2008 | 15:02
Allt í fullum gangi
Hef heyrt í mjög áhugasömu fólki á undanförnum dögum. Áhugasömum um Ketilásball 2008 bannað innan 45 ára. Það er nú kannski svona viðmið sem við setjum okkur. Plús mínus einhver ár ætti nú alveg að sleppa til. Án þess að ég ætli að vera með einhliða tilslakanir þá finnst okkur eðlilegt að t.d. hjón komist saman á þetta ball þó einhver aldursmunur sé á þeim. Ein sem ég heyrði í í dag sagðist hafa verið komin langleiðina með að bóka húsið ásamt fleirum fyrir svipað ball. Það var fyrir c.a. tveimur árum. Áhuginn er því greinilega fyrir hendi. Okkur langar að biðja ykkur sem hér lítið við að vinna ötullega með okkur að því að kynna þetta og endilega benda öðrum á þessa síðu.Margar hendur vinna létt verk.
Siglfirðingar, fljótamenn, ólafsfirðingar og allir þeir sem hafa skemmt sér á "Ásnum" gegn um tíðina verum með og látum í okkur heyra.
Ippa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 17
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 83
- Frá upphafi: 249349
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
agny
-
andres
-
baldurkr
-
birgitta
-
bjarkey
-
bjarnihardar
-
blues
-
brahim
-
gattin
-
dabbi
-
saxi
-
ea
-
geirfz
-
gthg
-
vild
-
hannesgi
-
herdis
-
smalinn
-
hlynurh
-
maggatrausta
-
ingibjorgstefans
-
astromix
-
jensgud
-
nonniblogg
-
jullibrjans
-
ksig58
-
kiddirokk
-
lks
-
maggimark
-
mariaannakristjansdottir
-
motiv
-
nanna
-
solir
-
ottarfelix
-
palmig
-
ronnihauks
-
seljanesaett
-
sigurjonth
-
sms
-
bjre
-
stebbifr
-
stefanjon
-
fugla
-
valgerdurhalldorsdottir
-
nytthugarfar
-
ippa