Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2008
16.2.2008 | 17:55
Enga feimni......
Við sjáum að fólk er tilbúið að segja reynslusögur af Ketilásböllum - bara skemmtilegt. !!!
Væri gaman að fá fleiri svona í bland við frábæra tónlist sem Vilborg finnur fyrir okkur í takt við tíðarandann ! MT Kannski kem ég með eina undir nafni áður en langt um líður......
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2008 | 17:30
Þessi er svolítið bitur.....
Einnig aðsent í emali...engin nöfn, bara reynslusögur.....
" Ég eignaðist sæta kærustu og við hittumst í fyrsta inn á Ketilásballi, æ hún var svo sæt og ljúf og dansaði svo dásamlega.........
Við vorum kærustupar og ég hélt að hún elskaði mig afar mikið. Á eitt ballið kom ég svolítið seint og hvað sá ég - mín sæta kærasta var í vangadansi við annan strák. Hjarta mitt stoppaði eitt augnablik.
Ég var reiður, þarna hafði einhver gaur tekið fram fyrir hendurnar á mér - og ég var afar sár.
Þetta kvöld leit hún ekki við mér - ég vissi ekki hvað ég hafði gert af mér. Ég fékk aldrei að vita afhverju þetta fór svona.....en tíu árum seinna hitti ég hana og það eina sem ég fékk að vita, var að ég hefði komið of seint. Frjálsar ástir, hver var að tala um þær ......................ég er að hugsa....ég er 54. ára í dag, ég er giftur en hvar er þessi áfjáða ást sem byrtist í kossum og faðmlögum og..... ?????....................
Frábært, tjáið ykkur endilega....MT
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2008 | 15:48
Meira um æskuástir.....
.....Frá ónefndum strák.... 16.02.2008.
" Skemmtilegt af ykkur að reyna að halda ball á 'Asnum.Ég var afar feimin í þá daga, oft stóð ég við húshornið á Ketilási og virti fyrir mér stelpurnar sem komu með rútunum frá Sauðárkróki, Siglufirði eða Ólafsfirði - einnig komu margir á einkabílum þær voru margar sætar..... Ég sá margar stelpur en var of feimin til að reyna við þær Eitt kvöld kom til mín "galvösk " stelpa sem endilega vildi dansa við mig. Ég lét tilleiðast þó ekki væri ég mikill dansmaður. En við erum gift í dag - svo ekki sé ég eftir neinu. Við mætum galvösk á Ketilásinn í sumar.....það verður gaman "
Já, ekki leiðinleg skilaboð .....MT
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2008 | 15:28
Æskuástir.......
....barst með póstinum mínum....byrt óbreytt og nafnlaust....
" Ég fór oft á Ketilásinn, og sumarið 1968 hvað oftast. Ég hitti strák sem ég heillaðist af, hann var sætur og hress og við einhvernvegin smullum saman. Hvert laugardagskvöld beið hann eftir mér á Ketilási ,við héldumst hönd í hönd allt ballið, dönsuðum vangadans og keluðum smá og svo fór hvert heim til sín eftir ballið.
Sumarið leið og á síðasta balli haustsins sagði hann " Ég er að fara suður á vertíð" ég varð leið en sagði þó ekkert. Bara bless ! Þannig var það - engar skuldbindingar ekkert vesen en ástarsorg hjá mér í smá tíma.
Ég hef ekki séð hann síðan....veit að hann er giftur og á börn - það er ég líka.
Ef ég kem á Ketilás, þá er það ekki til þess að brjóta neitt upp, mitt samband við minn mann eða reyna að skemma neitt fyrir honum heldur - væri gaman að sjá hvernig hann lítur út í dag og hvernig honum hefur vegnað í lífinu. Það væri gaman. En ég er hamingjusöm í dag.
Okkur, mér og mínum Ketilásvini var greinilega ekki ætlað að vera saman - og það er allt í lagi en hann á samt smáhólf í hjartanu mínu ! "
Gaman að fá svona sögur. Frá Ketilási eigum við mörg góðar minningar. MT
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.2.2008 | 13:33
Tíðarandinn
Það er óneitanlega dálítið snúið að kalla fram rétta tíðarandann á dansleikjum eins félagsheimilis norður í landi. Félagsheimilis sem hefur hýst alls kyns dansleiki og samkomur í áratugi.
Félagsheimili sem auk þess rúmaði barnaskóla undir sínu þaki í einhverja áratugi.
Við höfum farið rólega af stað. Höfum leitað eftir tónlist frá hippaáunum og árunum fyrir þau. Tónlist sem ruddi brautina fyrir þær breytingar sem urðu á hippaárunum.
Ást friður og frjálsar ástir. Hvernig fer það annars saman? Ég held að enginn geti gert sér í hugarlund hve gífurleg bylting varð á þessum árum. Til góðs eða ills? Það er ekkert hægt að alhæfa um það. Það fylgja bæði kostir og gallar breytingum. Fullvíst má þó telja að fordómar og afturhald hafi orðið að taka mörg skref aftur á bak á þessum árum og eftir þau. Á sama tíma var kannski minna gefið fyrir tryggð og hina einu sönnu ást. Þó auðvitað geti engar þjóðfélagslegar eða eigum við að segja vestrænar breytingar sett einhverjar skorður á hina einu sönnu ást.
Þessi söngkona var "mega hippi" , lifði og dó samkvæmt því.....þegar lagið er búið hér á skjánum getið þið auðveldlega flett upp fleiri lögum með þessari stórkostlegu söngkonu í litlu gluggunum fyrir neðan.
Ippa
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
15.2.2008 | 23:42
Og þvílík innlifun

Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
14.2.2008 | 21:33
Bee Gees
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.2.2008 | 19:26
Í upphafi var orðið....
Set hér inn til gamans upphaflegu hugmyndina að því að halda "come-back" ball á Ketilási. Þetta er að finna í athugasemdum við færslu sem kallast "Eyjólfur að hressast" á bloggsíðu minni ippa.blog.is undir bloggflokknum bloggar. Stundum veltir lítil þúfa þungu hlassi......
"Athugasemdir
... ég keyrði langan bíltúr í dag... frá Akureyri til Þórshafnar og til baka seinnipartinn, var að detta inn fyrir klukkutíma síðan... landi okkar var mjööög fallegt og alveg hreint komið í blóma... svanir, gæsir og endur með ungviðið sitt á tjörnum og ám, gróðurinn stórkostlegur... Öxarfjarðarheiðin hægfara en fallegt útsýnið yfir Melrakkasléttuna... verst að ég kemst ekki í sumarfrí fyrr en um miðjan ágúst... hvernig er það annars á ekkert að hafa "come back" ball á Ketilási, bannað yngri en 40??? djöf... væri það góð hugmynd...Brattur, 29.6.2007 kl. 22:02
Frábær hugmynd. Set Möggu systir í málið! Hún er svo drífandi. Ætti að ganga með Miðaldamönnum eða Geirmundi gamla? Þó er ekkert sem jafnast á við Gautana einu og sönnu.Vilborg Traustadóttir, 29.6.2007 kl. 23:18
... í alvöru, þetta yrði gaman... veistu hver ég er???Brattur, 29.6.2007 kl. 23:25 Ég er ekki alveg viss en kannast við svipinn. Úr Ketilásþokunni. Magga systir er komin með málið með ballið!!!Vilborg Traustadóttir, 30.6.2007 kl. 11:53
Ég heiti sem sagt Gísli og er Gíslason og er frá Ólafsfirði, kallaður Gilli í gamla daga... Alli Gísla sem var nokkuð þekkt nafn á veitaböllunum í gamla daga er bróðir minn... svo voru þarna nöfn frá Ólafsfirði eins og Matti Sæm. Maggi Hófu og Böddi Hófu o.fl. o.fl... held hinsvegar að ég hafi oftast verið frekar stilltur og ekki áberandi... en óttalegur kjáni....Brattur, 30.6.2007 kl. 13:32
Já ég tengdi þig við Ólafsfjörð. Allir þekkja Alla "Ólafsfirðing", held m.a.s.að önnur hvor systra minna hafi eitthvað verið að slá sér upp með honum. Kannast við hin nöfnin sem þú nefnir. Aðallega gegn um systur mínar. Það var svo alltaf spurning ef maður fór á Ketilásinn hvort maður vaknaði á Ólafsfirði eftir ballið! Veit ekkert um kjánaskapinn....... en hafir þú lent fyrir barðinu á okkur systrum er nú ekki að sökum að spyrja......... Hvað um það ball bannað innan 40 er nú í uppsiglingu á Ketilási ef Magga systir stendur sína plikt!!!!Vilborg Traustadóttir, 30.6.2007 kl. 15:14
Talandi um kjána....auðvitað man ég líka eftir Gilla Ólafsfirðingi!!! Hæ!!Halló!!Vilborg Traustadóttir, 30.6.2007 kl. 15:30"
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
14.2.2008 | 08:18
Mættum við fá meira að heyra............
.......frá ykkur, alveg að detta í þrjú þúsund heimsóknir ! Endilega látið vita af ykkur.
Svo má senda email á jose.mor@simnet.is (Magga) og ippa@simnet.is okkur vantar skemmtilegt efni og svo væri gaman að fá myndir !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.4.): 17
- Sl. sólarhring: 32
- Sl. viku: 83
- Frá upphafi: 249349
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
agny
-
andres
-
baldurkr
-
birgitta
-
bjarkey
-
bjarnihardar
-
blues
-
brahim
-
gattin
-
dabbi
-
saxi
-
ea
-
geirfz
-
gthg
-
vild
-
hannesgi
-
herdis
-
smalinn
-
hlynurh
-
maggatrausta
-
ingibjorgstefans
-
astromix
-
jensgud
-
nonniblogg
-
jullibrjans
-
ksig58
-
kiddirokk
-
lks
-
maggimark
-
mariaannakristjansdottir
-
motiv
-
nanna
-
solir
-
ottarfelix
-
palmig
-
ronnihauks
-
seljanesaett
-
sigurjonth
-
sms
-
bjre
-
stebbifr
-
stefanjon
-
fugla
-
valgerdurhalldorsdottir
-
nytthugarfar
-
ippa