Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Saga Ketilássins

Í annálum Hannesar á Melbreið og í Fundagerðabók UMF Holtshrepps kemur fram að Ketiláshúsið var upprunalega byggt árið 1926.  Þá var það byggt sem þinghús og jafnan nefnt "Hreppurinn", það var síðar tekið í notkun sem skóli.  1954 var búið að byggja það sem er upphækkun og er notað að hluta til sem eldhús í dag.  Breytingar voru gerðar á húsinu upp úr 1958.  Þá var byggður salurinn niðri (danssalurinn, sem við skólakrakkarnir þekktum sem leikfimisalinn).
Símon Þorsteinsson sem bjó á Nýrækt lengdi húsið þar sem upphækkunin er, eldhús, snyrtingar og forstofa, svo byggði Hermann Guðbjartsson frá Reykjarhóli salinn sem áður er nefndur. 
Þorsteinn í Stóraholti gaf landið undir samkomuhúsið.
Verið er að grafast fyrir um hvaðan nafnið Ketilás kemur, ef einhver veit það væri gaman að fá að vita það.
 
 
Heimildaöflun annaðist Rögnvaldur Valbergsson.  M.a. hjá Ásu á Nýrækt og Adda á Reykjarhóli. 
 
Kveðja Ippa. 
 


Vangalagasyrpan, sígilt og rómó

Hver man ekki þetta?
Vinsæl og hljómuðu oft sem síðasta lag á Ketilásnum.InLove 

Góðar fréttir þetta með Storma

 

Þeir eiga örugglega eftir að gera stormandi lukku .....Stormarnir !

 

MT


Stormar!!!

Hljómsveitin Stormar frá Siglufirði hefur

samþykkt einróma að leika fyrir dansi á

Ketilásballinu sem allt snýst um á þessari

síðu.

Skilaboðin frá Stormum eru "GERUM ÞETTA

GRAND"!!!

Þann 26. júlí 2008 verður haldið ball ætlað

45 ára og eldri á Ketilási í Fljótum.  

Sumir vilja meina að þeir komist inn "í fylgd

með fullorðnum" en það verður bara að koma í

ljós!Wizard  

 

Systurnar á Kim
 
Hér eru "Sauðanessysturnar" á Kim Larsen tónleikum s.l. haust (ljósm. Jón Svavarsson). Það má leiða að því sterkum líkum að þær mæti fjallhressar á ballið góða.  Örugglega 2/3 af þeim jafnvel "fullt hús"!!!  
Frá vinstri Sólveig, Vilborg, Margrét. 

Elvis er dáin.....

 

 

Þessi mynd er víst frá 1968 af sjálfum kónginum.

Ég hef einhverntíma sagt frá því einhversstaðar sem "coment" kannski en segi frá því aftur hér.....

.......Fyrir örfáum árum var undirrituð stödd í fallegri brúðkaupsveislu hjá bróðurdóttur sinni...

Í veislunni kom til mín stúlka sem hafði passað yngri dóttur mína eitt sumar eða svo, meðan ég var að vinna. Hún fór í þessari veislu að tala um eitt síðdegi þegar hún kom til mín að passa, þá sá hún að mér var ekki rótt og var ég auðsjánlega búin að gráta að hennar sögn...og spurði hún þá í sakleysi sínu "Magga hvað er að ?" Svarið var einfalt og hún Magga brast í grát aftur...."Hann Elvis er dáin"  Svo mörg voru þau orð og ekki laust við að í þessari annars fallegu brúðkaupsveislu mörgum árum seinna hafi Magga viknað við um stund....en viðstaddir hlógu mikið að þessari sögu......þó svo að efnið væri enn afar viðkvæmt fyrir mér þarna mitt í veislunni góðu jafnaði ég mig fljótt, auðvitað vildi ég ekki skemma annars frábæra veislu......snökt....en hún Magga fór í vinnuna umræddan löngu liðin dag með grátbólgin augu - allt útaf Elvis !Crying 

Þetta sagði hún Didda barnfóstran mín og ég efast ekki um að þetta hafi verið rétt svo mikill aðdáandi var ég og minnist þess líka að hafa verið aum ! FootinMouth

En er þetta ekki bara tímanna tákn, hversu mikið við héldum uppá okkar IDOL....í þá gömlu góðu daga. Elvis var góður !InLove Og er .............love..............

Cool   MT


Frábært og hljómaði á Ketilásnum!

Með góðri Ketiláskveðju.  Það er komin af stað hreyfing í að afla sögu Ketilássins sem mun væntanlega birtast hér á síðunni um leið og hún berst.  Fyrirfram þakklæti til þeirra sem leggja á sig vinnu við að aðstoða.  Hollvinir Ketilássins eru víða og ég sé að á Ólafsfirði eru til skráðir hollviir í Bylgjubyggð.  Gaman væri að heyra frá þeim!!!Smile

Hey Joe - Jimmy Hendrix


Ótrúlegur.  Kvepja, Ippa

Hush...Deep Purple


Er þetta ekki tíðarandinn 1968?  Grúpíur og alles....Ippa InLove

Dusty Springfield!



Kveðja,  Ippa

Eigið góðan sunnudag.....

Vincent Van Gogh Almond Branches in Bloom  1890 Stretched Canvas PrintWhistling

 

 

....þess vegna er hér fallegt möndlutré í blóma og...

....rós handa ykkur öllum, rós sem minnir á að vorið er ekki langt undan og 26.júlí kemur áður en varir......

...en þá verður sveitaball á Ketilási í anda Hippatímabilsins fyrir 45 ára og eldri.

...leggið daginn á minnið    26. júlí 2008

 

 

Hafið það sem allra best. MT


« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 245403

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband