Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

I´m down

Vekur upp minningar frá svipuðum tíma, eitthvað milli 1976 0g 1980.Whistling Gaman saman W00t og enginn down!!! LoL 
 
Kveðja Ippa. 

One of these nights.

Vekur upp ljúfar minningar, hjá mér og vafalaust hjá mörgum öðrum.  

Kveðja Ippa


Ástarsaga úr fjöllunum

Ball á Ásnum á föstdagskvöldi.  Ég hitti mann.  Hann virtist hafa áhuga á mér. Alla vegana var hann leitandi.  Við fórum að dansa og dönsuðum saman mest allt ballið. Þess á milli fórum við út að labba og kæla okkur, á salernið o.s.frv.

Annars vorum við saman allt þetta kvöld.  Sem var heilmikið á minn mælikvarða.  Ég var vön að vera eins og jó jó út um allt og stoppa hvergi lengur en fimm mínútur.  

Stundum hugsa ég um þennan strák og um það hvar hann geti verið í dag? Ég man ekki einsu sinni hvað hann heitir?  Viltu setja þetta inn fyrir mig? 

 ---

Svo mörg voru þau orð,  kannski hittast þau í sumar?  Á hlutlausu svæði nálægt Fjallabyggð!

 

kær kveðja,  Ipp

 


Something

Það er falleg hugsun á bak við þetta myndband.  Fjallar um ást, rómantík og tryggð.  Lagið er snilld eins og allt annað frá Bítlunum.  Ótrúlega afkastamiklir og góðir.  Brautryðjendur fyrir nýja strauma og ftábærir listamenn.  
 
Kveðja, Ippa

1968 var það árið?


The Seekers - Georgy Girl
 
Dásamlegt!!InLove

Kveðja, Ippa

Where have all the flowers gone?

Dálítið táknrænt í víðustu merkingu þess orðs.  Bæði miðað við fréttina hér á undan og einnig það að við "ellismellirnir" ætlum að koma saman á Ketilásnum í sumar.  Peter, Paul og Mary greinilega í svipuðum fíling og við hin!  

Kveðja Ippa


Popp og politík.......

Datt inn á sérlega áhugaverðan þátt á RÚV núna eftir hádegið að vísu þáttur 2 af 3....en þarna er fjallað um tónlistina og politíkina á 6 og 7unda áratugnum. Áhugavert fyrir okkur sem erum að standa að "Hippes" balli á Ketiási í sumar og auðvitað alla hina líka.

Áhrif tíðarandans hafa skilað sér vel til okkar kalda lands og unga fólkið á Íslandi hefur verið vel með á nótunum þrátt fyrir fjarlægð frá þeim svakalegu atburðum sem áttu sér stað úti í heimi.

Martin Luter King var myrtur svo og John F Kennedy - einnig var það hið hræðilega Vietnam stríð í gangi - þetta er allt í fersku minni, fréttir af dauða og blóði, fólk var borið lemstrað af vígvelli, hafði jafnvel misst útlim eða annað sem nauðsynlegt er hverjum lifandi manni.

-

Ekki skrítið að við höfum brugðist við eins og við gerðum, þrátt fyrir það að vera hér á okkar kalda landi, langt,langt í burtu frá öllu því sem þarna var að gerast. En við tókum svo sannarlega þátt í þessu, vorum vel í sambandi við tónlist þessa tíma og tíðaranda og þjáðumst með meðbræðrum okkar.

Í okkur var líka uppreisn og við klæddum okkur eins og meðbræður okkar í útlandinu, sungum sömu lögin, dönsuðum eins og þau og vorum bræður í raun !

Það var margt sérstakt við þessa tíma og sá kraftur sem bjó í unga fólkinu smitaðist um heiminn gjörvallan - Eruð þið ekki sammála mér ?

Ég segi eins og Bubbi.

Bræður og systur, hvar eruð þið ? Okkur vantar meiri umræðu á Ketilás síðuna.

 

Bræður og systur, hvar eruð þið ? Okkur vantar að heyra frá ykkur - verið með.......

Gleymum ekki sögunni - tölum saman.

 

Sendið okkur email eða óskið eftir aðgangi ....

margr.tr@simnet.is

ippa@simnet.is

Stöndum saman

Peace.

MT

Hvert horfðu hermennirnir í stríðinu í Vietnam ? Upp í gegn um skóginn í leitinni að ljósinu sem þeir annað hvort fundu eða fundu ekki.............

Sorglegt stríð eins og svo mörg önnur stríð svo tilgangslaus.....................

 

Guð gefi ykkur gleðilegan sunnudag.

Peace, not war.

MT


Ketilásrómantík

Ég fór í langan bíltúr með konu í dag.  Konu sem er mér nákomin.  Ég var að segja henni frá Ketilássíðunni og því sem við værum að setja inn á hana. Hún fékk alveg stjörnuglampa í augun.

Hún sagði mér að hún hefði átt skemmtilegar stundir þarna á Ketilásnum. Þær ljúfustu sem hún mundi eftir voru eittthvað upp úr 1970,  sennilega árið 1972 eða 1973.  Hún sagðist hafa kynnst Ólafsfirðingi og þau hefðu verið talsvert saman í kring um Ketilásböllin.  Hann hefði verið reglusamur og oft verið bílstjóri fyrir bróðir sinn og vini.  Hún hafi verið ofboðslega skotin í honum.  Fundið þessi tengsl sem sé svo sjaldgæft að finna.

Um haustið skildust leiðir. 

Oft hef ég verið að velta fyrir mér í gegn um lífið hvað það hefði verið gaman að kynnsat honum betur sagði hún. 

Þú mátt svo gjarnan segja frá þessu sagði hún aðspurð um hvort ég mætti setja smá "romance" inn á Ketilássíðuna.

 

 

 

Með kveðju, Wizard  Ipp

  


Snowbird

Fallegt og vel flutt. kveðja,  Ippa

Snýst "come-backið" ekki um þetta?

Helgarkveðja,  Ippa  Heart

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Ketilás
Ketilás
Höfundar hafa haldið sex böll á Ketilásnum 26. júlí 2008, 25. júlí 2009 og 24. júlí 2010 sem tókust afburða vel. Hippahelgi var haldin frá 22. júlí til 24. júlí 2011. Fimm ára afmæli Hippaballa var haldið 21. Júlí 2012. 27. júlí 2013 var sjötta hippaballið haldið. Engan bilbug er á okkur að finna og hefur húsið verið bókað en eftir er að fastnegla tíma. Við höfum stækkað nefndina og þurfum að auka enn frekar samráð við aðila á svæðinu, jafnframt munum við efla umgjörð hippaballsins til að festa það í sessi. . "Á sama tíma að ári"......sem sagt......stuðið er rétt að byrja! Ketilás - Woodstock!

Tónlistarspilari

- 04 - Danska lagið

Færsluflokkar

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 88
  • Frá upphafi: 245258

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 5

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nýjustu myndir

  • image
  • hippaball
  • DSC_2852
  • DSC_2852
  • img_7469
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband