27.7.2008 | 21:23
Á sama tíma að ári?
Ég var að uppgötva það að ég ( Ippa) er að verða "atvinnulaus"! Það hefur verið í nógu að snúast við undirbúning hippaballsins sem við héldum á Ketilási í gærkvöldi. Nú er það um garð gengið og tókst vægast sagt mjög vel. Allir mættu í góðu skapi og ákveðnir í að skemmta sér. Allir létu girðingarstaurana eiga sig og féllust í faðma í hinum eina og sanna anda blómabarna hippatímabilsins. Frjálsar ástir voru þó ekki viðhafðar að því er ég best veit en því meira var um saklaust kossaflens og innileg vinarfaðmlög og viðræður. Hippaþemað var tekið misalvarlega og má til gamans geta þess að Björk á Hraunum mætti með fulla tösku að dásamlega fallegum hippaböndum sem hún hafði búið til og útbýtti. Eða eins og hún sagði "fyrstir koma, fyrstir fá". Þar sem ég var að skríða í hús heima hjá mér eftir að hafa ekið í einum rikk úr Brú, ætla ég að láta bíða morguns að setja inn nokkrar myndir og munuð þið þá fá að líta augum öll herlegheitin. Einnig væri mjög gaman að fá myndir frá ykkur til að birta á síðunni (ippa@internet.is) og ekki væri verra að fá eins og eina "pararazzi" !!!
Þetta var allt æðislega gaman. Takk öll fyrir frábæra samveru og góða skemmtun á hinum margumrædda Ketilás. Við í nefndinni Ippa, Gugga og Magga sendum ykkur ástar og saknaðarkveðjur með laginu Someone.
Atvinnulaus hvað? Hittumst á sama tíma að ári!
Stormar eru æðislegir og hitta beint í hjartastað.
Ippa
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.2.): 17
- Sl. sólarhring: 17
- Sl. viku: 99
- Frá upphafi: 248401
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
- agny
- andres
- baldurkr
- birgitta
- bjarkey
- bjarnihardar
- blues
- brahim
- gattin
- dabbi
- saxi
- ea
- geirfz
- gthg
- vild
- hannesgi
- herdis
- smalinn
- hlynurh
- maggatrausta
- ingibjorgstefans
- astromix
- jensgud
- nonniblogg
- jullibrjans
- ksig58
- kiddirokk
- lks
- maggimark
- mariaannakristjansdottir
- motiv
- nanna
- solir
- ottarfelix
- palmig
- ronnihauks
- seljanesaett
- sigurjonth
- sms
- bjre
- stebbifr
- stefanjon
- fugla
- valgerdurhalldorsdottir
- nytthugarfar
- ippa
Athugasemdir
Já, allt samkvæmt björtustu vonum,ekkert sem klikkaði ! Svona á að vinna saman. Sakna ykkur dúllurnar Ippa og Gugga og samstarfsins - en við erum ekki hættar ! Það var gaman að koma í gömlu sveitina, hitta gamla vini syngja og dansa og síðast en ekki síst geta skilið eitthvað gott eftir til uppbyggingar á Ketilási ! Magga
Ketilás, 28.7.2008 kl. 07:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.