Færsluflokkur: Bloggar
29.7.2009 | 16:55
Markaður á Ketilási
Mikil og góð markaðsstemning var á Ketilási laugardaginn 25. júlí s.l. þrjátíu söluaðilar komu saman og seldu hinn ýmsa varning. Notað og nýtt. Hér fylgja nokkrar skemmtilegar myndir frá deginum.







Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2009 | 23:35
Þakkir og "á sama tíma að ári"...Baby come back...
Við stöllur erum afar þakklátar öllum þeim sem aðstoðuðu okkur á svo margan hátt við undirbúning og framkvæmd þess að halda hippaball á Ketilási.
Fyrst og fremst erum við þakklátar Stormum fyrir að æfa upp þvílíkt flotta prógrammið fyrir okkur og að halda uppi stuðinu sleitulaust allt kvöldið.
Við erum þakklátar starfsfólkinu á Ketilási fyrir einstaklega ljúfa lund og góð samskipti.
Þakklátar uppboðshaldara málverkanna, mælingameistara og undirleikara í gjörningi, Þakklátar fyrir aðstoð við að koma markaðinum á koppinn og allt í kring um hann.
Þakklátar söluaðilum sem lögðu mikið á sig til að bjóða sem vandaðasta og fjölbreyttasta vöru.
Umfram allt erum við þó þakklátar þeim sem mætti bæði á markaðinn og á ballið um kvöldið því án ykkar væri ekkert.
Gerð var athugasemd við miðaverð og þótti sumum það hátt. Þegar hins vegar svo einstakur atburður er viðhafður, hljómsveit æfir eingöngu upp fyrir þetta eina ball þá finnst okkur ekki mikið að greiða 3000 krónur fyrir miðann. Einnig tókum við srtrax í upphafi þá stefnu að allir sætu við sama borð og greiddu inngangseyri. Mennirnir okkar og fjölskyldur greiða inn á ballið og gera það með glöðu geði þar sem enginn einka gróðastefna er í gangi. Eru það líka ekki meðmæli með Stormum að eiginkonur þeirra borga sig inn til að hlusta á þá og dansa við undirspil eiginmannanna?
Ég held það.
Þess má geta að ágóðinn rennur allur til ýmissa góðgerðarmála bæði af hálfu hljómsveitarinnar og okkar sem stöndum fyrir þessu. Við stöllur látum það sem eftir stendur þegar hljómsveit og kostnaður hefur verið greitt renna til Ketiláshússins. Ég sá í fréttablaðinu Feyki á heimleiðinni að nýlega var skipt um þak á húsinu og það var allt unnið í sjálfboðavinnu svo við vonum að þær krónur sem við skildum eftir okkur núna nýtist vel.
Það voru um 130.000 krónur en þá á eftir að greiða einhver laun og leyfið sem húsið tekur að sér ef ég man þetta rétt.
Við erum ekki hættar og auðvitað vonumst við eftir að Stormar verði í stuði með okkur að ári. Eins og einn sagði við mig í "Kaupfélaginu" á Sigló..." ég hef aldrei farið á ball á Ketilási áður og þetta var æðislegt og það verður að vera þessi músík" .....önnur sagði við sama tilefni...."þetta verður að vera aftur".....svo heyrði ég í öllum hornum og við hvern rekka...."ég fór á Ketilásinn og mikið var ofboðsleg...rosalega...eða æðislega....gaman" Allt eftir orðaforða hvers og eins...
Svo við segjum auðvitað "Baby come back".
Takk fyrir komuna á ballið kæru vinir. Dreifbýlishjartað mitt slær enn taktfastara en áður eftir að hafa rifjað upp góð kynni í kring um og á þessum viðburðum...
Ippa væmna og hinar tvær Magga og Gugga....

P.S. Set meira inn á morgun og næstu daga bæði af ballinu og markaðinum.
Bloggar | Breytt 30.7.2009 kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.7.2009 | 17:30
Veðrið....
Menn voru afar spenntir yfir gjörningnum og gaman hvað veðrið var okkur gott. Það var svalandi að fá ferskan vindinn inn um dyrnar af og til og hressandi að taka þátt í gjörningnum á túninu. Hér eru mæðgurnar Alla og Áshildur gjarnan kenndar við Nýrækt eða Sólgarða. Þó snjór sé í fjöllum var ósköp stillt og gott veður á Ketilásnum þennan dag og þetta kvöld. Trausti á Bjarnagili mætti manna fyrstur til að missa ekki af neinu. Hann tók sig vel út eins og aðrir ballgestir sem hlekkur í þeirri friðarkeðju sem tengd var á túninu og myndaði "peace" merki sem Margrét hafði fengið Rögnvald til að mæla út fyrir. Þetta var mjög táknrænn viðburður og vel við hæfi að haldast í hendur um stund, syngja um frið á jörð og upplifa kærleika gagnvart náunga sínum. Það vantaði ekki á kærleikann þann á Ketilásnum!
Ippa komin í gírinn...meira í kvöld...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.7.2009 | 15:50
Fleiri myndir væntanlegar með kvöldinu.....
MT
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2009 | 01:43
Simon say´s
Símon á Steinaflötum (Barði/Bæ) stjórnaði málverkauppboði til styrktar Þuríði Hörpu af röggsemi. Hér er hann með eina "bláa" eftir Margréti sem var slegin Viðari á Hraunum, Hvað annað? Þess má til gamans geta að Vilborg gaf Viðari eina bleika dagin eftir svo nú er það "bleikt og blátt" á Hraunum......Viðar og Anna Fríða keyptu svo eina bleika til úr safni Vilborgar (Ippu).....Þess má til gamans geta að myndirnar sem Ippa var að þvælast með á markaðinum eru nú til sýnis í Sauðanesvitanum þar sem hver listviðburðurinn rekur annan í listaþema hjá "vinum vitanna"....m.a. spilaði þar hljómsveit í dag (set inn nafnið um leið og ég fæ það staðfest). Magga mun svo setja þar upp myndir seinni partinn í ágúst.



Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.7.2009 | 00:07
Niðurtalning hafin!
Við erum ekkert að tvínóna við það...vonandi verður sama rjómablíðan og sama stuðið á öllum....Ég hitti fólk á Siglufirði sem tók "allan pakkan"og fór með Jóni á Sleitó í sætaferð...."þetta verður að vera aftur næsta ár"...sögðu þau.....Já Stína Boga við stefnum að því.....

Bloggar | Breytt s.d. kl. 02:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2009 | 23:39
Myndir komnar frá Öllu
Ég setti inn nokkrar myndir af ballinu frá Öllu. Set fleiri frá henni og mér og af markaðinum á morgun. Þarna eru Magga og Röggi greinilega ánægð með gjörninginn....og ballið.....

Við stöllur erum búnar að panta húsið að ári!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.7.2009 | 22:58
Myndir
Eins og sjá má var veðrið yndislegt á Ketilásnum. Gjörningurinn er þarna í fullum gangi. Hann fólst í því að Röggi spilaði undir og allir sungu "Allt sem við viljum er friður á jörð" og mynduðu Peace merki í hring á túninu á Ketilási.
Skemmtileg uppákoma. Meira á morgun..
Ippa komin heim...

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.7.2009 | 12:14
Ketilás, myndir....
Róleg þær koma. - Ippa er á suðurleið og vonandi nær hún að skella þeim inn í kvöld !
Það verður gaman að virða fyrir sér herlegheitin
Gleymdi að skrifa að húsið var pantað á sama tíma að ári !
MT.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2009 | 19:24
Nú er ballið búið.........
Takk öll sem mættuð á frábært ball á Ketilási í gær. Allt tókst mjög vel og engan skugga bar þar á. Þið eruð auðvitað skemmtilegust af öllum.
Stormar - takk fyrir frábært stuð !
Aðeins færri mættu en á síðasta ári og vildu margir kenna þar um kuldakastinu á Norðurlandi - en engum var kalt og meira að segja "gjörningurinn" á túninu tókst vel. Það verða settar inn myndir hér á síðuna fljótlega af öllum herlegheitunum !
Uppboðið gekk vel og við erum stoltar af því systur hversu vel þessu var tekið og svo bætti hún Áshildur Ö Magnúsdóttir um betur og gaf einnig mynd á uppboðið svo þær urðu alls sjö ! Einnig komu ungar stúlkur úr Fljótunum sem voru að selja ýmsa hluti á markaðnum og gáfu sinn hlut í söfnunina. Þannig að vonandi verður þetta góð viðbót í söfnunarsjóðinn hennar Þuríðar Hörpu sem við munum hafa samband við í dag eða á morgun.
Markaðurinn gekk vel og mjög góð mæting.
Meira seinna frá bara "smáþreyttum" en sælum nefndarkonum sem nú eru hver á fætur annarri að skila sér heim til sín !
En þessi síða heldur áfram auðvitað og vonandi verðið þið dugleg að kíkja hérna við, skoða myndirnar og fylgjast með framvindu mála.
Fallegt lag með honum Cliff Richard,Visions og vel við hæfi að enda á því. Stormarnir spiluðu það auðvitað af mikilli snilld og við fórum auðvitað einhver uppá stóla og veifuðum höndunum með friðarboðskapinn í huga
Bloggar | Breytt 27.7.2009 kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Tónlistarspilari
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.9.): 31
- Sl. sólarhring: 31
- Sl. viku: 89
- Frá upphafi: 250990
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 8
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
agny
-
andres
-
baldurkr
-
birgitta
-
bjarkey
-
bjarnihardar
-
blues
-
brahim
-
gattin
-
dabbi
-
saxi
-
ea
-
geirfz
-
gthg
-
vild
-
hannesgi
-
herdis
-
smalinn
-
hlynurh
-
maggatrausta
-
ingibjorgstefans
-
astromix
-
jensgud
-
nonniblogg
-
jullibrjans
-
ksig58
-
kiddirokk
-
lks
-
maggimark
-
mariaannakristjansdottir
-
motiv
-
nanna
-
solir
-
ottarfelix
-
palmig
-
ronnihauks
-
seljanesaett
-
sigurjonth
-
sms
-
bjre
-
stebbifr
-
stefanjon
-
fugla
-
valgerdurhalldorsdottir
-
nytthugarfar
-
ippa